Hvað gera stjórnvöld, stofnanir og fyrirtæki þegar gögn eru orðin að innviðum fyrir gervigreind?
GAGNVIST2026 er ráðstefna um íslenska gagnavistkerfið, haldin í Grósku fimmtudaginn 26. nóvember. Þar kemur saman fólkið sem safnar, stýrir og nýtir gögn á Íslandi – úr stofnunum, ráðuneytum, háskólum og atvinnulífi.
Daginn opna Steve MacFeely, aðaltölfræðingur OECD, og Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri. Að loknum erindum þeirra sest Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í pallborð með þeim og ræðir um uppbyggingu íslenskra gagnainnviða.
Síðan taka við þrjár málstofur sem fjalla um hvað stjórnvöld eru að gera í gagnamálum og gervigreind, hvernig stofnanir eins og Skatturinn, Hagstofan og HMS hafa bætt gagnainnviði sína, og hvaða verkefni í sjávarútvegi, náttúruvöktun og sjálfbærni sýna hvað gögnin gefa af sér. Deginum lýkur með verðlaunaafhendingu GAGNAÞONS2026.
Fyrir gagnastjóra, greinendur, tölfræðinga, þróunarteymi og stefnumótendur – alla sem bera ábyrgð á gögnum á Íslandi.
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg.
Dagskrá
09:30 Húsið opnar – morgunkaffi
10:00–11:15 Leiðarar: Af hverju erum við að þessu?
Reflections on the dataverse: revolutions and spillovers — Steve MacFeely, aðaltölfræðingur OECD
Áhrifarík útgáfa opinberrar tölfræði — Hrafnhildur Arnkelsdóttir, hagstofustjóri
Pallborðsumræður — Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri og Steve MacFeely, aðaltölfræðingur OECD
11:20–12:00 Málstofa II: Stefnur og aðgerðir
Hvað eru stjórnvöld að gera sem styður við gagnavistkerfið?
Gagnastjórnun og gervigreind — Hlynur Bjarki Karlsson, gagnastjóri hjá Stafrænu Íslandi
Hvað þarf að vera til staðar áður en við treystum gervigreind fyrir mikilvægum verkefnum? Um stýringu gagna hins opinbera og hvort við séum tilbúin í næstu skref.Ísland og gervigreindarfullveldi — Atli Þór Sigurgeirsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Mat á stöðu Íslands og aðgerðir stjórnvalda til að efla gervigreindarfullveldi landsins.
12:00–13:00 Hádegismatur
13:00–14:00 Málstofa III: Gagnainnviðir og umbætur
Hvað hafa stofnanir gert til að bæta gagnainnviði?
Notendavæn forskráning gagna og gagnagæði — Trausti Bergur Traustason og Kjartan Másson, Skatturinn
Forskráning leigusamninga á framtöl og markviss „hnipp" byggð á spálíkani; nálgun sem OECD hefur kynnt sem dæmi um gervigreind og hegðunarfræði í stjórnsýslu.G-in þrjú: Gervigreind, gagnasamningar og meira kaffi — Sigurður Jónsson, Hagstofa Íslands
Hvernig Hagstofan nýtir gagnasamninga og gervigreind í endurbættu gagnaflæði – hvað hefur gengið vel og hvað hefur reynst áskorun.Gögn og greiningar um landnýtingu, fasteignir og húsnæði — Herdís Sigurgrímsdóttir, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Könnunarleiðangur HMS um aðgengileg gögn um landnýtingu og skipulagsmál – hvað má bæta og hvað hefur verið gert.
14:00–15:00 Málstofa IV: Nýsköpun og virðisaukning
Hvaða verkefni sýna fram á virði gagnanna?
Næsta kynslóð verkfæra í sjávarútvegi — Sveinn Sigurður Jóhannesson, Greenfish
Náttúrugögn fyrir stefnumótun — Íris Ólafsdóttir, Orb Green
Þjóðnýting gagnainnviða — Jón Ágúst Þorsteinsson, Klappir grænar lausnir
Hvernig sameiginlegir gagnainnviðir, sjálfvirkir gagnastraumar og gervigreind geta skapað ný tækifæri til hagræðingar og verðmætasköpunar fyrir samfélagið í heild.
15:00–15:15 Kaffihlé
15:15–16:00 GAGNAÞON 2025: kynning og verðlaunaafhending
Árangur af aðgangi að reikniafli fyrir Ísland — Morris Riedel, Háskóli Íslands
Kynning á vinningsliðum og verkefnum þeirra — Ingólfur Hjörleifsson, Háskóli Íslands
Verðlaunaafhending og lokaorð
16:00–17:00 Léttar veitingar