GAGNAÞON 2026
Gagnaþon tengt ráðstefnunni Íslenska gagnavistkerfið (GAGNVIST) verður haldið helgina 31. október til 01. nóvember. Niðurstöður verða kynntar á GAGNVIST ráðstefnunni 26. nóvember.
[ For English version see here ]
Gagnaþon 2026 - verkefnalýsing
Gervigreindargagnaþon Hagstofu Íslands – smíðum snjalla leitarvél fyrir hagtölur
Markmið gagnaþonsins er að þróa virka frumgerð að gervigreindardrifna leitarvél sem gerir notendum kleift að spyrja um gögn Hagstofu Íslands á venjulegu máli og fá skýr, gagnreynd svör.
Lausnin skal byggja á LLM-mállíkani, RAG eða beinum fyrirspurnum í PX-Web API Hagstofunnar og notendavænu viðmóti, til dæmis spjallmenni á vefsíðu.
Þátttakendur geta valið að keyra bakendann á NVIDIA DGX Spark, öflugri tölvu með GPU eða LUMI-ofurtölvunni. Hægt verður að vinna með staðbundinn vektorgagnagrunn, sækja nýjustu tölur beint úr gagnagrunni Hagstofunnar með API-fyrirspurnum eða sameina báðar leiðir. Nota skal opin gögn Hagstofu Ísland en einnig er veittur aðgangur að viðeigandi reikniafli hjá Háskóla Íslands og gengum Kveikju og Glóð samstarfsverkefnin.
Gagnaþonið stendur yfir í tvo sólarhringa og er ætlað háskólanemum, fagfólki og fyrirtækjum. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna forritunarþekkingu og geta þróað kerfi frá grunni. Reynsla af LLM, LoRA, RAG, AI-agentum og verkfærum á borð við Python, PyTorch, TensorFlow, Hugging Face, Ollama og GitHub er kostur, en ekki er krafist sérfræðiþekkingar á öllum þessum sviðum.
Afrakstur gagnaþonsins skal vera virk frumgerð sem tekur við spurningu notanda, finnur rétta töflu og viðeigandi, gögn, sækir eða endurheimtir tölurnar og skilar auðskiljanlegu svari með skýrri tilvísun í útgefnar hagtölur Hagstofunnar.
Skoða dæmi um spjallmennið Hag.
Hentar þessi áskorun þér? Þú þarft að vera vanur forritari og geta tekið þátt í hönnun og smíði heildstæðrar AI-lausnar. Þekking á Python og einhverjum af eftirfarandi þáttum er æskileg: LLM/LoRA, RAG, vektorgagnagrunnar, API-samskipti, PyTorch, TensorFlow, Hugging Face, Ollama eða sambærileg verkfæri.
Hægt er að skrá einstaklinga eða teymi.