Hver er að telja?

Falsfréttir og villandi upplýsingar.

Hvernig getum við stutt nemendur til að hugsa gagnrýnið um tölur?

Hagstofa Íslands, í samstarfi við Önnu Heru Björnsdóttur stærðfræðikennara við Verzlunarskóla Íslands, kynnir nýja nálgun við kennslu til að efla gagna- og upplýsingalæsi framhaldsskólanema.

Í dag er færni í gagna-og upplýsingalæsi eitt af því mikilvægasta sem nemendur þurfa að tileinka sér, sérstaklega í ljósi aukinnar upplýsingaóreiðu og falsfrétta á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum almennt. Til þess að takast á við þessa áskorun þurfa stofnanir sem ábyrgjast áreiðanlegar upplýsingar um félags- og efnahagsmál að vinna saman að því að efla skilning og gagnrýna hugsun.

Á viðburðinum verður kynnt ný kennsluáætlun fyrir áfanga í gagnalæsi á framhaldsskólastigi. Áfanginn er í anda Greindu betur frumkvæði Hagstofunnar, sem miðar að því að styrkja gagna- og upplýsingalæsi meðal ungmenna á aldrinum 14-19 ára.

Öll velkomin og þátttaka ókeypis.

Hver er að telja? er viðburðaröð Hagstofu Íslands og Borgarbókasafnsins um gagnalæsi og miðlunarleiðir í anda Greindu betur - www.greindubetur.is.

Viðburðarröðin er hluti af verkefni styrktu af Evrópusambandinu sem miðar að því að efla læsi ungmenna á töluleg gögn og upplýsingar.

Staður: Borgarbókasafnið Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík

Viðfangsefni: Hagtölur  X Gagna- og upplýsingalæsi

Skráning: Alltaf ókeypis

Frekari upplýsingar veitir Greindu betur teymið á Hagstofu Íslands:
greindubetur@hagstofa.is