Um GAGNVIST

Gríðarleg tækifæri til verðmætasköpunar liggja í bættu aðgengi að gögnum og nýtingu þeirra. Í því samhengi hafa verið gerðar breytingar á lögum sem kveða á um opið aðgengi að virðisaukandi gögnum íslenska ríkisins auk þess sem unnið er að íslenskri gagnastefnu sem hefur það að markmiði að skapa sameiginlega sýn sem styður við gagnadrifna verðmætasköpun á Íslandi.

Hagstofa Íslands í samstarfi við háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar býður til ráðstefnu um þróun íslenska gagnavistkerfisins.

Dagur: 27.nóvember 2024

Staður: Gróska

Viðfangsefni: Kynning á Gagnastefnu Íslands  X Þróun íslenska gagnavistkerfisins

Skráning: Ókeypis